cloudy

11°C

Ísafjörður

cloudy

9°C

Hornbjargsviti

Boat Tours

Hvað er þetta

Popular
Veiðileysufjörður liggur á milli Hesteyrarfjarðar og Lónafjarðar. Enginn hefur búið í firðinum í meira en 100 ár og eina ummerki um mannabyggð er lár grasbali eftir hvalstöðina á Meleyri.
Popular
Hornvík er sannarlega náttúruparadís fyrir náttúruunnendur. Fuglabjargið í Hælavíkurbjargi og Hornbjargi eru tvö stærstu fuglabjörg í Norður-Atlantshafi, þar sem um 5-6 milljónir sjófulga koma sér fyrir yfir sumrin.
Popular
Hesteyri er gáttin inn í friðland Hornstranda fyrir göngufólk. Á Hesteyri er að finna vel viðhaldin og hefðbundin hús frá um 1900 sem eru í reglulegri notkun af eigendum þeirra á sumrin.
Popular
Grunnavík er á milli Staðarhlíðar og Vébjarnarnúps. Grunnavík er fullkominn upphafsstaður fyrir gönguferð um sunnanverða Jökulfirði. Í Sútarabúðum er þjónusta þar sem er hægt að fá gistingu og veitingar.
Popular
Aðalvík er einn fallegasti staður friðlandsins á Hornströndum. Gróðurinn er mikill, þrátt fyrir að vera á mjög norðarlegri breiddargráðu, og bæði dalirnir og strendurnar gera Aðalvík að hinu fullkomna umhverfi fyrir útivistarævintýri.