rain

1°C

Ísafjörður

cloudy

1°C

Hornbjargsviti

New

Kajak í Önundarfirði

Róið um Önundarfjörðinn á kajak

Uppgötvaðu undur Önundarfjarðar í ævintýralegri dagsferð á kajak. Mikilfengleg fjallasýn umlykur fjörðinn sem er aðeins steinsnar frá Ísafirði. Þessi ferð sameinar kyrrláta náttúrufegurð, dýralíf og gleðina við að róa í gegnum óspillt vatnið.

Efni ferðarinnar

Yfirlit ferðar

Lýsing

Þessi ævintýralega kajak dagsferð býður upp á skemmtilegt leiðarval í gegnum eitt af földu leyndarmálum Íslands. Ferðalagið byrjar á bækistöðum okkar Mávagarði C, (grá skemma), þar sem þú hittir leiðsögumanninn þinn og færð þann búnað sem þú þarft fyrir ferðina. Eftir það liggur leið okkar í átt að Önundarfirði, þar sem við munum róa á milli afskekktra stranda og uppgötva faldar víkur. Hafðu augun opin fyrir allskyns dýralífi, þá sérstaklega selum, þar sem þeir eru þekktir fyrir að skjóta upp forvitnum kollunum þegar kajakar nálgast. Við munum síðan njóta hádegisverðar við ströndina með fjöllin gnæfandi yfir okkur og útsýni yfir Önundarfjörðinn. Hvort sem þú ert nýliði á kajak eða ert búin/n að róa lengi, þá er þetta ferðin fyrir þig!

 

Byrjunarstaður: Mávagarður C  (grá skemma) nálægt austur höfninni.

Brottför: kl: 09:00. Mæting hálftíma fyrir brottför.

Lágmarksaldur: 16 ára.

Hópastærð: Við þurfum minnst 2 þátttakendur til að geta farið í ferðina. Mest geta 8 manns komið með, en flestar ferðirnar eru með á milli 2-6 þátttakendur.

Erfiðleikastig: Miðlungs.

Lengd ferðar: 5 klukkutímar

Innifalið: Bílferð yfir á Flateyri, allur kajak búnaður og faglegur leiðsögumaður

Ekki innifalið: Nesti fyrir daginn

Myndir

Ferðaáætlun

Þeir eru margir möguleikarnir fyrir leiðarval í þessum stóra firði. Hvaða leið verður valin hverju sinni, fer algjörlega eftir aðstæðum og sjávarföllum þann daginn. Á kortinu hér fyrir neðan getur þú séð okkar uppáhalds leiðir.

Þessi ferðaáætlun er birt með fyrirvara um breytingar vegna veðurs og/eða aðstæðna. Vegna veðurskilyrða, gæti verið að við snúum ferðinni við og byrjum hana í Hornvík. Við munum gera okkar besta til að sjá til þess að þessi ferð verður að veruleika.

Hvað þarf að taka með?

  • Ullar eða flís fatnað, frá toppi til táar. Forðastu að klæðast bómul, þar sem bómullin er bæði lengi að þorna og heldur ekki hita þegar hún blotnar.
  • Auka föt ef þú skyldir blotna.
  • Nesti fyrir daginn.
  • Sólhatt, sólgleraugu og sólarvörn
  • Vatnsflaska.
  • Ekki gleyma myndavélinni þinni!

Algengar spurningar

Þú getur tekið með þér myndavél og síma. En, eins og við öll vitum, fara raftæki og vatn ekki vel saman og því mikilvægt að fara varlega. Við hjá Borea berum ekki ábyrgð á persónulegum eigum þínum. Að því sögðu, þá er mjög ólíklegt að þú munir missa eða eyðileggja símann/myndavélina þína, þar sem við lendum örsjaldan í veltum. Annars mælum við með því að nota vatnshelt hulstur eða þurrpoka.
Bátarnir okkar eru mjög stöðugir og hvolfa örsjaldan, því er mjög ólíklegt að þú rennblotnir. Kajak búnaðurinn okkar mun halda þér þurrum að mestu leyti en hins vegar er eðlilegt að lenda í nokkrum skvettum á meðan verið er að róa.
Við notum sjókajaka úr plasti. Við erum bæði með eins manns kajaka sem og tveggja manna. Við mælum stórlega með því að nota tveggja manna kajaka í ferðunum okkar, þar sem þeir eru hraðari, stöðugri og mun félagslyndari heldur en eins manns kajakarnir. Þeir sem hafa miklu reynslu á að ferðast um á kajak vita kosti þess að vera á tveggja manna kajak, þannig þeir eru alls ekki bara fyrir byrjendur. Hins vegar ef þú hefur mikla reynslu og langar að vera á eins manns kajak er þér auðvitað velkomið að gera það.
Þessi ferð hentar þeim sem eru með einhverja reynslu af kajak. Til að geta róið lengri vegalengdir þarftu að vera með gott úthald og grunn róðratækni á hreinu. Ef þú ert byrjandi þá mælum við með ferðinni okkar ‘Kajakferð á Pollinum’.

Kort

Bóka ferð

Svipaðar ferðir

VINSÆLT!
Popular
Vinsælt
Fullkomin ferð fyrir náttúruunnendur sem langar að upplifa villt dýralíf frá öðru sjónarhorni. Það hve kajakarnir eru hljóðlátir gerir það að verkum að þú nærð að blandast inn í umhverfið betur og þar með upplifa dýralífið á stórkostlegan hátt.
27. maí, 2024
13. september, 2024
VINSÆLT!
Popular
Vinsælt
Hálfs dags kajak róður á milli vestfirsku fjallanna sem gnæfa yfir Ísafirði. Þetta er ævintýri sem hentar byrjendum sem og þeim sem langar í spennandi innsýn í þá frábæru íþrótt sem sjókajak er.
19. maí, 2024
14. september, 2024