Hornvík er sannarlega náttúruparadís fyrir náttúruunnendur. Láglendið er búsvæði margra tegunda vaðfugla líkt og stelka, heiðlóa, óðinshana og spóa. Fuglabjargið í Hælavíkurbjargi og Hornbjargi eru tvö stærstu fuglabjörg í Norður-Atlantshafi, þar sem um 5-6 milljónir sjófulga koma sér fyrir yfir stuttu sumrin sem við fáum hér undir norðurheimskautinu. Á klettum þessara bjarga situr heimsins stærsta byggð af langvíum og stuttnefjum, en einnig eru stórar byggðir af ritum, álkum og fýlum. Í bjarginu verpa einnig lundar og margar tegundir máva. Einnig hefur verið hægt að koma auga á helsingja upp á síðustu ár.
Kóngurinn á svæðinu er án efa Heimskautarefurinn sem er friðaður á Hornströndum. Hann reikar um fjöll og fjörur í leit af æti og er frekar rólegur í kringum manneskjur. Það eru margir hrífandi útsýnisstaðir í Hornvík sem þú ættir ekki að missa af á meðan þú ert á staðnum.