cloudy

4°C

Ísafjörður

cloudy

4°C

Hornbjargsviti

/

/

Hornvík

Hornvík

Hornvík er sannarlega náttúruparadís fyrir náttúruunnendur. Láglendið er búsvæði margra tegunda vaðfugla líkt og stelka, heiðlóa, óðinshana og spóa. Fuglabjargið í Hælavíkurbjargi og Hornbjargi eru tvö stærstu fuglabjörg í Norður-Atlantshafi, þar sem um 5-6 milljónir sjófulga koma sér fyrir yfir stuttu sumrin sem við fáum hér undir norðurheimskautinu. Á klettum þessara bjarga situr heimsins stærsta byggð af langvíum og stuttnefjum, en einnig eru stórar byggðir af ritum, álkum og fýlum. Í bjarginu verpa einnig lundar og margar tegundir máva. Einnig hefur verið hægt að koma auga á helsingja upp á síðustu ár. Hví förum við ekki í dagsferðir yfir í Hornvík? Við trúum á ferðir sem eru í takt við friðlandið. Umhverfisáhrifin og hættan sem myndast þegar farið er of hratt yfir er eitthvað sem við, björgunarsveitin og þú viljum forðast. Því skipuleggjum við ekki dagsferðir í Hornvík. Kóngurinn á svæðinu er án efa Heimskautarefurinn sem er friðaður á Hornströndum. Hann reikar um fjöll og fjörur í leit af æti og er frekar rólegur í kringum manneskjur. Það eru margir hrífandi útsýnisstaðir í Hornvík sem þú ættir ekki að missa af á meðan þú ert á staðnum.

BÓKAÐU FERÐ

Aðrir Áfangastaðir

Aðalvík er einn fallegasti staður friðlandsins á Hornströndum. Gróðurinn er mikill, þrátt fyrir að vera á mjög norðarlegri breiddargráðu, og bæði dalirnir og strendurnar gera Aðalvík að hinu fullkomna umhverfi fyrir útivistarævintýri.
Grunnavík er á milli Staðarhlíðar og Vébjarnarnúps. Grunnavík er fullkominn upphafsstaður fyrir gönguferð um sunnanverða Jökulfirði. Í Sútarabúðum er þjónusta þar sem er hægt að fá gistingu og veitingar.
Hesteyri er gáttin inn í friðland Hornstranda fyrir göngufólk. Á Hesteyri er að finna vel viðhaldin og hefðbundin hús frá um 1900 sem eru í reglulegri notkun af eigendum þeirra á sumrin.
Veiðileysufjörður liggur á milli Hesteyrarfjarðar og Lónafjarðar. Enginn hefur búið í firðinum í meira en 100 ár og eina ummerki um mannabyggð er lár grasbali eftir hvalstöðina á Meleyri.